Veiruvörn (Virus Protection)
Á meðan eldveggurinn hindrar óumbeðna netumferð, þá laumast veirur framhjá með innihaldi netumferðarinnar svipað og þegar dyravörður hleypir boðsgestum inn en leitar ekki á þeim. Þessu er mikilvægt að bregðast við með hugbúnaði sem nefnist veiruvörn, sem má segja að "gegnumlýsi" umferðina. Þær eru að öllu jöfnu ekki innbyggðar í stýrikerfi tölva í dag og þarf að kaupa sérstaklega.
Góð ráð
- Notaðu veiruvarnir frá viðurkenndum og þekktum framleiðendum
- Oftar en ekki eru keyptar veiruvarnir vandaðri en þær sem eru ókeypis
- Farðu vel yfir allar stillingar veiruvarnarinnar. - Oftast virka sjálfvalin gildi best (Default).
- Oft eru til nokkrar útgáfur frá sama framleiðanda. Grunn útfærslan er veiruvörn og hins vegar fylgir meira með, s.s. eldveggur og njósnavörn sem er ekki þörf á þegar notuð eru stýrikerfi sem hafa slíkt innbyggt.
- Tryggðu að veiruvörnin sé alltaf virk og uppfæri sjálfkrafa nýjustu endurbætur



.jpg)


